AJAX öryggiskerfi

Nortek býður upp á hágæða öryggiskerfi frá AJAX systems.
Úrval af víruðum og þráðlausum skynjurum sem hafa Grade 2 vottun.
Allt tengt beint í símann þinn á einfaldan hátt svo þú getir fylgst með í rauntíma án mánaðargjalda.

AJAX Grunnpakkinn

Settu saman þitt kerfi

Einfalt og þægilegt án mánaðargjalda.

Skynjararnir tengjast við stjórnstöð (Hub) og eru með QR kóða sem þú skannar með símanum þínum. Þú getur fylgst með kerfinu hvar og hvenær sem er. Allt sem þú þarft er AJAX appið og nettenging. 

Tilkynningar berast í rauntíma þegar kerfið fer í gang og svo getur þú stillt allt eftir þínum þörfum og bætt við notendum. 

Mikið úrval af skynjurum býður upp á mikinn sveigjanleika og hentar því kerfið fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Auðvelt er að byrja smátt og bæta svo við skynjurum eftir þörfum, hvenær sem er.

Þú getur sett saman þinn pakka og skoðað úrvalið í heild sinni í netverslun okkar.

 

Hafir þú áhuga á víruðu öryggiskerfi þá mælum við með AJAX Fibra.

Skoðaðu úrvalið!

Hér getur þú skoðað úrval þráðlausra skynjara og kosti þeirra.

Stjórnstöð +

Annarrar kynslóðar stjórnstöð með fjórum samskipta rásum (Wi-Fi, Ethernet, WCDMA og GSM), nýjum öflugum örgjörva, þrefaldri RAM getu og tvöföldu flash minni. Stjórnstöðin, Hub Plus, hefur eftirlit með öllum aðgerðum Ajax skynjarana og varar eigandann strax við.

Stjörnstöðin sér um stýringuna á Ajax öryggiskerfinu, samþáttar aðgerðir tengdra skynjara og tækja og miðlar til eigandans.

Stjórnstöð

Snjallvæn stjórnstöð hugbúnaðarins er einn af lykilþáttum AJAX öryggislausnarinnar. Búnaðurinn hefur eftirlit með öllum skynjurum AJAX kerfisins og sendir viðvörunarmerki beint til eiganda.

Útisírena

Þráðaus sírena sem gefur frá sér hátt hljóð og ljós þegar að stjórnstöðin nemur eitthvað óvenjulegt.
Sett upp utandyra til að vara við óviðkomandi aðgangi.
Hljóðstyrkurinn 85 – 113 db í 1 m. fjarlægð
Stærð: 200 x 200 x 51 mm

Snertiskjár

Snertiskjárinn er til notkunar innandyra og virkar sem stjórnborð og lesari. 
Þú getur virkjað og afvirkjað kerfið með PIN númeri, aðgangskorti eða með símanum þínum.  Hægt er að fylgjast með kerfinu, sjá stöðu skynjara, setja rými á vörð eða búa til reglu fyrir ákveðna skynjara í kerfinu.

 

Reykskynjari - FireProtect 2

FireProtect 2 er næsta kynslóð reykskynjara frá AJAX. Hannaður fyrir eldvarnir í íbúðarhúsnæði og uppfyllir allar eldvarnarkröfur.
Reykskynjarinn er með reykhólf sem þarfnast ekki reglulegrar hreinsunar og er tvívirkur, greinir reyk frá gufu.

Innisírena

Þráðaus sírena sem gefur frá sér hátt hljóð þegar að stjórnstöðin nemur eitthvað óvenjulegt.
Sett upp innandyra til að vara við óviðkomandi aðgangi.
Sírenan inniheldur blikkljós, sem fer af stað um leið og sírenan hringir.
Hægt er að breyta hljóði í sírenu, bæði lengd og styrk hljóðs.
Hljóðstyrkurinn er 81-105 dB í 1 meters fjarlægð.

Rúðubrotsskynjari

Lítill þráðlaus gluggaskynjari sem lætur vita um leið og hann nemur að gler sé brotið í glugga. Hann er staðsettur 9m frá glugga og síar frá tilfelli þar sem viðvörun er röng.

Vatnsloki

WaterStop, vatnslokinn, lokar sjálfkrafa fyrir vatnið á 5 sek þegar vatnsnemi AJAX er virkjaður. Vatnslokinn samanstendur af hágæða vatnsloka og öflugu rafstýrikerfi. Þú getur einnig búið til atburðarás til að loka fyrir vatnið á tilteknum tíma eða þegar kerfið er virkjað.

Loftgæðanemi

Þessi nýjung frá AJAX getur komið sér einstaklega vel fyrir fólk með ofnæmi, astma eða eru viðkvæm í öndunarfærum. Loftgæðaneminn mælir koltvísýring (CO2), hita- og rakastig í rauntíma og gefur LED ljós á honum til kynna hvort loftgæðin séu góð eða slæm. Einnig er send tilkynning beint til notenda og alltaf hægt að fylgjast með loftgæðum í snjalltækinu.

Hurðaskynjari +

Þráðlaus hurðaskynjari sem lætur vita um leið og hann telur að það sé innbrot inn um hurð eða glugga.
Einnig hægt að festa hann á þakglugga sem eru skildir eftir opnir.

Hurðaskynjari (gluggaskynjari)

Þráðlaus hurðaskynjari (gluggaskynjari) sem lætur vita um leið og hann telur að það sé innbrot vegna skemmda á hurð eða glugga.
Hægt að festa hann á allar gerðir hurða, einnig úr járni.

Vatnsskynjari

Þráðlaus vatnsskynjari nemur fyrstu merki um leka á aðeins nokkrum millisekúndum. Engin verkfæri þörf til uppsetningar. Kemst auðveldlega undir uppþvotta- og þvottavélar.

Samþættur hreyfi- og rúðubrotsskynjari

Þráðlaus hreyfi- og rúðubrotsskynjari.
Skynjarinn hentar í rými þar sem hægt er að brjótast inn bæði í gegnum hurð og glugga.
Hann greinir núverandi ástand glersins.

Reyk- og hitaskynjari

Þráðlaus reyk- og hitaskynjari sem mælir stöðugt bæði hita og reyk í rýminu.
Lætur vita um leið ef hitastig rýmisins rís skart.

Lyklaborð

Þráðlaust lyklaborð til að virkja og slökkva á AJAX kerfinu.
Staðsett innandyra við útgangshurð til að auðvelda aðgang.

Einnig er hægt að virkja og afvirkja kerfi með snjallforriti og fjarstýringu á lyklakippu.

Fjarstýring

Það er auðvelt að bæði virkja og slökkva á mismunandi nemum með fjarstýringunni.
Merkið er sent á dulkóðuðu sniði sem kemur í veg fyrir að hægt sé að eiga við kerfið.

Hreyfiskynjari

Þráðlaus hreyfiskynjari lætur eigandann vita um leið og innbrots verður vart. Skynjarinn er staðsettur á vegg fyrir framan hurðar, glugga og aðra staði þar sem innbrot er líklegt.
Virkar í allt að 7 ár án endurnýjunar batterís.
Leiðir hjá sér hunda og ketti sem eru undir 20kg og 50cm á hæð.
Nákvæm skynjun á hitabreytingum, allt upp að 40 gráðum.

Hreyfiskynjari utandyra

Lítill þráðlaus utandyra hreyfiskynjari með stillanlegri fjarlægð á nema.
Skynjarinn þolir lágt hitastig og er varinn gegn ryki og raka.

Hreyfiskynjari með myndavél

Þráðlaus hreyfiskynjari með myndavél, til notkunar innandyra. Skynjarin sendir nokkrar myndir í appið þegar hann verður var við hreyfingu á 9 sekúndum.
Einungis þegar kerfið er á verði og myndirnar eru dulkóðaðar.

3d064593-c8bf-4624-bf8b-2085ef110f9f

Grunnpakkinn

AJAX grunnpakkinn er kjarninn í öryggiskerfinu þínu.

Inniheldur eftirfarandi:

  • Ajax stjórnstöð – Hub 2 4G
  • Ajax hreyfiskynjara
  • Ajax reyk- og hitaskynjara
  • Ajax innisírenu
Ajax Grunnpakkinn

Spurningar og svör

Ef þú vilt geturðu sett kerfið upp á eigin spýtur. Farsímaforritið gefur einfaldar leiðbeiningar varðandi uppsetningu. Fagaðili frá Nortek getur líka komið og sett kerfið upp og gefið ráðleggingar varðandi uppsetningu til að tryggja hámarks vernd.

Ef þú vilt aðstoð við uppsetningu á kerfinu, bjóðum við einnig upp það.

Í offline stillingu fylgjast skynjarar með aðstæðum og senda upplýsingar til móðurstöðvarinnar (Hub). Ef það er einhver hætta, munu sírenur kerfisins láta þig vita. Ólíkt flestum þráðlausum og víruðum öryggiskerfum notar Ajax tvöfaldar samskiptaleiðir til að senda viðvaranir, annars vegar í gegnum farsímasamskipti og hins vegar internet. Þegar vandamál eru með eina rás skiptir Ajax sjálfkrafa yfir í hina. Ef árásarmaður truflar t.d. GSM merkið sendir kerfið viðvörun þess í stað með Ethernet eða Wi-Fi. Kerfið lætur þó alltaf vita af öllum breytingum sem eiga sér stað.

Nortek með starfsfólk sem eru sérfræðingar á sviði öryggismála.
Fáðu ráðgjöf fagaðila við að  finna hvaða vörur henta fyrir þitt heimili eða fyrirtæki.

Á vefsíðu Ajax má einnig finna út hversu marga skynjara mælt er með að þú setjir upp á þínu heimili eða vinnustað. 
Smelltu á slóðina og veldu stærð kerfis.

Ajax er auðveldlega hægt að útvíkka og stækka með viðbótar skynjurum fyrir innganga, eld og vatn, svo og einingum til að stjórna raftækjum. Þú getur keypt og bætt við viðbótartækjum og tengt skynjara með nokkrum smellum í farsímaforritinu.

Auðveldasta leiðin til að fylgjast með kerfinu er að nota Ajax Security System forritið fyrir iOS og Android farsíma. Forritið gerir þér kleift að kveikja/slökkva á kerfinu og fylgjast með tækjunum þínum (þ.mt upplýsingar um stöðu merkis, rafhlöðustöðu og hitastig). Einnig er hægt að stjórna kerfinu með Ajax vegg-takkaborði eða flögu fyrir lyklakippu.

Búnaðurinn notar rafhlöður og því þarf að skipta um rafhlöður reglulega. Þar sem skynjarar eru hannaðir með þetta í huga, má gera ráð fyrir að rafhlöðurnar geti enst í allt að 7 ár í skynjurunum. Hugbúnaðurinn mun láta vita þegar æskilegt er að skipta um rafhlöðu.

Ajax sendir tilkynningar í gegnum farsímaforritið, með SMS skilaboðum eða símtölum til eiganda kerfisins. Þú getur valið tilkynningarstillingar þínar í farsímaforritinu. Hægt er að velja háværa tilkynningu úr símaforritinu þegar innbrotaboð eða önnur boð berast.

Ajax kerfið notar stafrænt reiknirit til að greina hreyfingu manna. Svo lengi sem gæludýrin eru minni en 50 cm og 20 kíló ættu þau ekki að setja Ajax skynjara í gang.

Nei. Ajax mun halda áfram að gæta húsnæðisins. Allir skynjararnir starfa á hleðslurafhlöðu en það er vararafhlaða í móðurstöðinni (Hub) sem dugar í allt að 16 klukkustundir þegar á þarf að halda. Þegar rafmagnið kemst aftur á hleður miðstöðin sjálfkrafa vararafhlöðuna.

Já, ef þú ert stjórnandi með fullan aðgang að kerfisstillingunum. Þú getur bætt allt að 50 notendum við Ajax kerfið þitt. Þeir geta verið fjölskyldumeðlimir, vinir, nágrannar, samstarfsmenn eða jafnvel öryggisfyrirtæki. Hægt er að gefa tímabundinn aðgang og eins hægt að henda út notendum á auðveldan máta.

Já, við fundum stutt myndband þar sem aðili setur kerfið upp og sýnir skrefin
Sjá myndband

AJAX Fibra

Fibra er háþróað öryggiskerfi sem notar nýjustu tækni til að veita bestu vernd sem völ er á. 

Háþróaðir skynjarar senda boð um leið og eitthvað óvenjulegt á sér stað.

Vírað öryggiskerfi

Fibra er vírað öryggiskerfi frá Ajax sem hefur þann möguleika að tengjast einnig þráðlausum skynjurum. Frábær lausn til að vernda fyrirtæki eða heimili.

Stjórnstöðin er búin allt að þremur boðleiðum, á Etherneti og símkerfi.
Kerfið er einnig byggt til þess að standast erfið veðurskilyrði og getur starfað ef rafmagnsleysi verður. Langvarandi vararafhlöður tryggja að allt sé á verði sama hvað á dynur á öllum tímum sólarhringsins. Það hentar því einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. 

Verndaðu fyrirtækið með Ajax Fibra og upplifðu fullkomið öryggi. 

Með úrval vandaðra og háþróaðra lausna, aðstoða fagaðilar okkar við að finna þá bestu fyrir hvern og einn.

 

Ajax Fibra öryggiskerfið er gríðarlega auðvelt í notkun. Með leiðbeinandi snjallforriti er hægt að stjórna kerfinu úr símanum eða spjaldtölvunni. Þú getur virkjað eða afvirkjað kerfið, athugað stöðu eignarinnar og færð viðvörun strax og eitthvað óvenjulegt á sér stað. ​

Nortek er með innbrotaviðvörunina fyrir skrifstofuna, verksmiðjuna, gagnaverið o.s.fr.v.
Hafið samband við söluráðgjafa til að finna réttu vöruna fyrir ykkur.