Snjallöryggiskerfi fyrir bústaðinn

Nortek býður upp á notendavænar öryggislausnir og snjallöryggiskerfi fyrir bústaðinn,
eins og innbrotakerfi, brunavarnir og myndavélar fyrir vöktun.

Ajax öryggiskerfi

Innbrotakerfi

Kerfið frá Ajax er snjallt og einfalt í notkun, en jafnframt vottað öryggiskerfi sem þú stjórnar með appi. Með Ajax færð þú sérsniðið kerfi að þínu heimili og þínum þörfum og sparar þér mánaðargjöldin. Allt frá einföldum lausnum, í snjalldósir og tengla sem leyfa þér að búa til reglur um hvenær skuli slökkna og kvikna á ljósum, eða öðrum raftækjum. Með Ajax er einfalt að byrja smátt, og bæta við kerfið eftir því sem hugurinn girnist.

Myndavélar

Það færist sífellt í aukarnar að fólk vilji geta vaktað bústaðina með myndavélum. Vélarnar frá Eufy eru einstaklega einfaldar í uppsetningu og einfaldar í notkun. Þú fylgist með vélunum í Eufy appinu, sem jafnframt sendir þér tilkynningu ef eitthvað óvænt kemur í mynd. Eufy vélarnar þekkja andlit og senda þér skýra myndir af þeim sem nálgast vélina. Útivélar Eufy eru með veðurvottun fyrir íslensk veðurskilyrði og eru því endingargóðar og öruggar. Þær henta einnig einstaklega vel til að fylgjast með færðinni og aðkomunni við bústaðinn. Þannig má búa sig rétt áður en haldið er af stað að heiman.

5070.84 - Edited
slokkvitaekjapakkinn

Slökkvitæki og Eldvarnarteppi

Brunavarnir eru einn mikilvægasti liðurinn í öryggi einstaklinga. Hjá Nortek vitum við að rétti búnaðurinn getur bjargað mannslífum, og því bjóðum við aðeins upp á það besta. Við mælum sérstaklega með reykskynjurunum frá Ajax í bústaðinn. Hann sendir þér tilkynningu í símann ef hann nemur reyk eða skarpar hitabreytingar, og þú getur brugðist við úr sófanum heima.

Hlið og bómur

Mikilvægt er að öryggishlið séu til staðar til að verja viðkvæm svæði fyrir óviðkomandi aðgangi. Nortek býður upp á öryggishlið, bómur, rennihlið, vængjahlið og öryggisgirðingar fyrir öll verkefni. Gsm hringjari, fjarstýringar, snjallforrit og aðgangsstýring eru meðal möguleika til stýringar á búnaðinum.

csm_mcs25-blauw-05_f496ba3f40-e1477326182386 - Edited