Öryggisvörur

Nortek býður upp á notendavænar öryggislausnir og öryggiskerfi fyrir heimilið,
eins og innbrotakerfi, brunavarnir og myndavélar til að vakta í gegnum app.

Öryggismyndavélar Eufy

EufyCam eru háþróaðar, þráðlausar  örggismyndavélar sem eru einfaldar í uppsetningu og notkun.

Þú tengir vélina við snjallforrit (app) og færð tilkynningar beint í snjalltækið þitt þegar vélin nemur hreyfingu á vöktuðu svæði.
Engin þörf á útköllum og engin mánaðargjöld.

Gríðarlega góð hleðsluending er á myndavélunum og notuð er USB snúra til að hlaða þær þegar þörf er á. Vélarnar eru með mjög goða veðurheldni og henta því sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.

Öryggismyndavélakerfi IDIS

Nortek býður upp á hágæða eftirlitsmyndavélakerfi, sem við sérsníðum að þörfum hvers og eins. Myndavélakerfin frá IDIS eru NDAA vottuð, standast því hæstu öryggis- og gæðakröfur.
Fagaðilar okkar sjá til þess að rétta kerfið henti aðstæðum, en ganga úr skugga um að laga megi kerfið að breyttum aðstæðum þegar fram líða stundir.
Við sjáum til þess að lögum um presónuvernd sé fylgt til hins ítrasta við öflun og úrvinnslu myndefnis.

Innbrotakerfi AJAX

Ajax er margverðlanað öryggiskerfi í Evrópu og hefur lausnir bæði fyrir heimili og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Í boði eru bæði þráðlaust og vírað innbrotakerfi. 

Þráðlaust innbrotakerfi Ajax hentar vel fyrir heimilið. Það er einfalt í uppsetningu og notkun. Notandi getur sett kerfið upp sjálfur og vaktað skilaboð/viðvaranir í snjalltækinu sínu með appi. Það er auðvelt að byrja smátt og bæta svo fleiri skynjurum við kerfið eftir þörfum.
Engin þörf á útköllum og ekkert mánaðargjald.

Víraða innbrotakerfið heitir Ajax Fibra og hentar betur fyrir fyrirtæki.
Það getur einnig tengst þráðlausum skynjurum.
Fagaðilar okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina fyrir þínar aðstæður.

AJAX Grunnpakkinn

Nortek er með myndavélakerfið og innbrotakerfið fyrir fyrirtækið og heimilið.
Hafið samband við fagaðila okkar til að finna réttu lausnina.