Skipaþjónusta, Fréttir

Skjámyndakerfi sem eykur öryggi til muna

Skjámyndakerfi sem eykur öryggi til muna

Um borð í uppsjávarveiðiskipi Samherja, Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, hefur verið tekið í notkun skjámyndakerfi sem tengt er við brunaviðvörunarkerfi skipsins. Greint er frá þessu á vefsíðu fyrirtækisins, þar sem segir: „Með tilkomu kerfisins getur áhöfnin séð með myndrænum hætti í hvaða rými skipsins viðvörun kviknar og þar með brugðist fyrr við en ella og með ákveðnari hætti. Ekki er vitað til þess að annað fiskiskip í heiminum sé búið slíku viðvörunarkerfi, enda þannig búnaður aðeins í stórum skipum, svo sem skemmtiferðaskipum.“

Samherji leitaði til fyrirtækisins Nortek, sem hefur áralanga reynslu í uppsetningu og viðhaldi brunaviðvörunarkerfa í skipum og bátum.